Um Swisstrax?
Þróun og hönnun polypropylene gólfflísanna, sem kenndar eru við SWISSTRAX , hófst í Sviss fyrir meira en 20 árum.
Árið 2005 var starfsemin flutt til Bandaríkjanna, og það var þá sem fyrirtækið Swisstrax var formlega stofnað. Síðan þá hefur Swisstrax verið leiðandi í heiminum í framleiðslu PP-gólfflísa, og notið feikilegra vinsælda vestanhafs – sem og víða í Evrópu, Mexíkó, Japan, Ástralíu o.fl.
Höfuðstöðvar SWISSTRAX eru í Bandaríkjunum, en þar er starfrækt framleiðsluverksmiðja. Önnur framleiðsluverksmiðja er staðsett í Kanada, og sú þriðja í Frakklandi – en sú verksmiðja þjónustar Evrópumarkað, og þ.á.m. Ísland.
Swisstrax þjónustar fjölmörg stórfyrirtæki, s.s. John Deere, Mercedes, Ford, Dodge, General Motors o.fl.
Swisstrax er einnig með samninga við ýmsa opinbera aðila, s.s. slökkvilið New York borgar (NYFD), og einnig Bandaríkjaher.
Allt framleiðsluferli SWISSTRAX miðar að fullkomnun. Hugað er að hverju einasta smáatriði í því skyni að gera Swisstrax flísarnar framúrskarandi. Þar má sem dæmi nefna QUICK-SNAP kerfið, sem gerir notandanum kleift að smella einstökum Ribtrax og Smoothrax flísum upp úr miðju gólfi – og aftur í, ef því er að skipta.
SWISSTRAX hefur hlotið fjölda vottana og viðurkenninga á sviði byggingarstaðla, umhverfismála o.fl.
Allar Swisstrax flísarnar eru 100% endurvinnanlegar. Það er ekki að ástæðulausu sem Swisstrax býður 20 ára verksmiðjuábyrgð á flísunum sínum!
SWISSTRAX nýtur feikilegra vinsælda í löndum s.s. Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó, Bretlandi, Frakklandi, Spáni, Sviss, Belgíu, Slóveníu, Svíþjóð, Ástralíu, Japan o.fl….OG NÚNA LOKSINS Á ÍSLANDI!
About
Hvað er Swisstrax?
SWISSTRAX er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði á heimsvísu, og nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó, Bretlandi, Frakklandi, Belgíu, Sviss, Slóveníu, Svíþjóð, Japan, Ástralíu…svo dæmi séu nefnd.
SWISSTRAX gólfflísarnar eru kenndar við samnefnt fyrirtæki, sem á uppruna sinn í Sviss – með tilheyrandi tæknikunnáttu og svissneskri verkfræði – og hefur nú starfrækt framleiðsluverksmiðjur í Bandaríkjunum í yfir 15 ár, og einnig í Kanada og Frakklandi.
SWISSTRAX flísarnar eru gerðar úr hreinu polypropylene, sem er gríðarlega þolið gegn sliti; miklum þunga; olíum, sýrum, leysiefnum o.fl.; og er auk þess hálkufrítt í bleytu. Flísarnar þola allt að -30°frost og 120° hita.
SWISSTRAX flísarnar eru DIY (Do It Yourself), sem þýðir að nánast hver sem er getur sett upp Swisstrax-gólf án aðkomu iðnaðarmanns. Flísarnar eru einfaldlega lagðar yfir núverandi gólf, s.s. steingólf, steinflísar, viðargólf o.s.frv…og að sama skapi er auðvelt að fjarlægja flísarnar, t.d. við flutning.
Swisstrax býður upp á nokkrar tegundir af flísum, sem allar hafa sama smellukerfi – og geta því tengst saman með auðveldum hætti.
Upplýsingar
Ármúli 13
108 Reykjavík
sala@straxgolf.is
Quick Links
- Um Swisstrax
- Tegundur
- Algengar spurningar
- Af hverju að velja Swisstrax